LEIKIR FYRIR ALLA OG ÖMMUR ÞEIRRA
LEIKUR 1/7
CHUG IT
- ~ Hittu hvar sem er á spjaldið til að drekka af bjórnum, hversu stór sopinn er veltur á því í hvaða reit á spjaldinu þú hittir.
- ~ Hvert lið eða leikmaður byrjar með 185 stig.
- ~ Sigurvegari leiksins er sá sem kemst fyrstur niður í 0. Þú verður að ná nákvæmlega 0 því annars ‘springurðu’ og færð engin stig fyrir þá umferð.
LEIKUR 2/7
ASNI
- ~ Flestir kannast við gamla góða Asna sem var spilaður á körfunum á skólalóðinni.
- ~ Þú þarft alltaf að toppa eða jafna stigaskor þess sem er á undan þér í röðinni. Ef þú nærð því ekki færðu staf.
- ~ Spilarar sem eru ASNI eru úr leik, sigurvegarinn er sá eini sem verður ekki ASNI.
- ~ Gott er að hafa í huga að þó þú getir ekki toppað skorið sem var á undan þér er mikilvægt að skora eins vel og hægt er þar sem næsti spilari þarf að toppa þig.
LEIKUR 3/7
KILLER
- ~ Hverju liði er úthlutað einn reitur á spjaldinu af handahófi.
- ~ Hittu þinn reit þrisvar til að verða morðingi. Þegar þú ert morðingi áttu að hitta í reiti mótspilara þinna og reyna að slá þá úr leik.
- ~ Barist er til seinasta manns og sá leikmaður sem stendur einn eftir vinnur.
- ~ Til að flýta fyrir endalokum telja allar pílur tvöfalt frá 6. umferð og þrefalt frá 8. umferð.
LEIKUR 4/7
SHANGHAI
- ~ Shanghai er 8 umferðir.
- ~ Í hverri umferð á að hitta í eina ákveðna tölu til að safna stigum. Þú safnar eins mörgum stigum og þú nærð hitta í töluna (tvöfaldur og þrefaldur telja með).
- ~ Í hverri umferð hækkar talan svo ekki hafa áhyggjur ef þú byrjar illa því næsta umferð er alltaf veigameiri.
- ~ Sigurvegarinn er leikmaðurinn eða liðið sem safnar flestum stigum í lok leiks.
- ~ Ef þú hittir í einfalda, tvöfalda og þrefalda reitinn úr öllum þremur pílunum færðu Shanghai. Þá er sá aðili krýndur sigurvegari og leiknum lýkur sama hvernig stigataflan lítur út.
LEIKUR 5/7
ÍSLENSKA SLÚÐRIÐ
- ~ Markmið leiksins er að koma kallinum þínum frá byrjunarreit á endareit.
- ~ Fyrstur til að ná því, eða sá sem er kominn lengst, eftir 6 umferðir vinnur leikinn.
- ~ Píluspjaldinu er skipt upp í 6 svæði sem táknar hverja hlið á teningi (frá 1 upp í 6).
- ~ Teningurinn skiptist upp í eftirfarandi svæði á píluspjaldinu: 1 = Tvöfaldi hringurinn 2 = Einfaldi feiti 3 = Þrefaldi hringurinn 4 = Einfaldi litli mjói 5 = Grænn búll 6 = Rauður búll
- ~ Passið ykkur á ða lenda ekki á slæmum slúður-reit því það mun senda kallinn ykkar til baka á þann reit sem rauða örin bendir á. Og gott slúður mun henda ykkur lengra áfram!
LEIKUR 6/7
MINESWEEPER
- ~ Allir byrja með þrjú líf.
- ~ Ef þú hittir útfyrir eða á svokallaðan bombu-reit þá missiru líf.
- ~ Í hverri umferð er tveimum bombu-reitum bætt við á spjaldið.
- ~ Þú safnar öllum stigunum nema þegar kastað er í bombu-reit.
- ~ Sá sem er stigahæstur eftir 8 umferðir vinnur. Eða þegar allir aðrir eru dánir.
LEIKUR 7/7
EAT THE CAKE
- ~ Planið er einfalt. Hittu í alla númeruðu reitina einu sinni til að vinna leikinn.
- ~ Fyrir hvern reit sem þú hittir safnarðu stigum (tvöfaldur og þrefaldur telja).
- ~ Bullseye (grænn og rauður) er alltaf opin fyrir stigasöfnun.
- ~Ef enginn spilari nær að loka öllum reitum í 8 umferðum vinnur sá sem er með flest stig.